Færsluflokkur: Bloggar

Ef mig hefur einhvertíma langað að beita ofbeldi.

Þá er það núnaAngry væri til í að koma höndum yfir þenna klerk og %&$#)%( og svo myndi ég vilja láta hann ganga í íslenskum ullarfötum með gæruskinn ufir hausin jú kanski leyfi honu að hafa gat fyrir annað augað ef hann lofar að tæla engan með því Þoli ekki þessar ansk.... rembur.
mbl.is Konur hylji allt nema annað augað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glaður kútur

Já litli kúturinn minn var bara glaður þegar hann vaknaði í morgun og leit út um gluggann ó gólaði SNJÓR mömmu sinni til lítillar gleði hefði alveg verið til í að sleppa við sjó fram í miðjan des og svo má hann fara aftur ekki seinna en 10 jan væri það ekki bara fínt.

En hann var ekkert smá glaður að fara af stað í skólann með þvílíkan farangur ss snjógallann og allan pakkann en mér er bara kalt brbrbrbbr.


Ætli þeir fái kaffi á tilboði vegna magninnkaupa

Geir og Dabbi hljóta að fá kaffið á betra verði  það sennilega engin smá umframm kaffikostnaður hjá seðló og forsætisráðuneitinu skildu þeir fá einkvað annað en mjólk útí til að slá á skjálftann og taugatitringinn.

Þar sem mer hefur ekki gengið neitt sérstaklega vel að hóa stjórnarliðinu saman ætti ég nú kannski bara að kíkja í kaffi til drengjana ég meina þeir eru hvort sem er ekki að tala um neitt sérstakt bara hittingur þannig að ég er varla að trufla.

Já hvernig væri að chilla með Geir Dabba og Björgúlfsfeðgum jú og svo myndu kannski stjórnarmenn KB kíkja úff nei það væri nú sennilega leiðinlegasti hittingur sem hugsast gæti.


Snilldar hugmynd

Jeebs nú hef ég ákveðið að hóa í ríkistjórnina og slatta af alþingismönnum skipa þeim að mæta hér hjá mér í kvöld og standa fyrir máli sínu, útskýra fyrir mér kvað er í gangi í þessu þjóðfélagiGetLost
mbl.is Kallaði ráðherra og þingmenn á fund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úff úff

Ok bankarnir farnir að fara á hausin líka og stærri fyrirtæki landsins eru mörg hver í miklum erfiðleikum þetta er ekki glæsilegt ástand almáttugur hvað ég vona að hlutirnir hér fari að fara í rétta átt ég hef nú engar áhyggjur af gulldrengjunum þeyr hafa örugglega náð að bjarga sínu það eru láglauna fólkið og bara allt venjulegt fólk sem maður hefur áhyggjur af.

Er Geir H Haarde illa gefin

Svei mér þá hvað ég er orðin þreytt á að horfa og hlusta á þennan forsætisráðherra okkar þusa um að ástandið hér sé bara ekki eins slæmt og allir tala um annað hvort er maðurinn í svona hrikalegri afneitun eða að hann er hreinlega ekki nógu vel gefin aumingjas kallinn.

Ég er stjórnlaus

Ég get svarið það að ég gjörsamlega stjórnlaus þessar vikurnar. É hef held ég aldrei borðað eins mikið á ævini það væri hægt að veita stóratæka hjálp í hrjáðum löndum bara með því sem ég læt ofan í mig á viku tímabili svo ekki sé nú talað um reykingarnar kæmi mér ekki á óvart þótt sleigist yrði um þjónustu mína hjá kjötframleiðendum landsins við að reykja hangikjötið í ár úff þetta er hroðalegt.

Eina sem ég græði á þessu er bjúur og vanlíðan  .Því í óskupunum gerir maður sér þetta að vakna upp með ljótuna á hverjum degi er ekki mjög gaman spegillinn og vigtin eru mínir verstu óvinir þessa dagana en þar sem ég sit hér og við tölvuna´(og gúffa í mig hlaupi í öllum regnbogans litum)Þá er ég að hugsa mjög alvarlega um að láta svifta mig sjálfræði og lika mig inni upp á vatn og kús kús því ekki hef ég neina stjórn á mér sjálf en mikið asssskoti er ég klár í að stjóra öðrum.


Crazy grandma

Já svei mér þá ef það örlar ekki á smá geggjun hjá mér þessa dagana dóttir mín komin á síðustu metrana á meðgönguni og ég er að bilast úr stressiFrown .Ekki man ég eftir að hafa verið svona stressuð þegar mín börn voru að fæðast núna er ég allan daginn að hugsa um hvort allt sé ekki lagi hvort henni líði ekki vel og þar framm eftir götunum eru þetta eðlilegir ömmutaktar þið þarna út sem eruð orðnar ömmur? en allavega þá get ég ekki orðið beðið eftir að bumbuprinsinn minn komi í heiminnSmile

Jæja loksins

Jæja loksins er ég mætt á bloggið aftur eftir langtBlush hlé geri svo sem ekki ráð fyrir að þið hafið saknað mín neitt geðveikt en nú ætla ég að fara að vera virk afturWink

Er ekki leti ein af dauðasyndunum

ShockingÞað er eins gott að þeyr tímar eru liðnir sem fólk var tekið af lífi fyrir leti því annars væri annaðhvort búið að afhöfða mig eða drekkja.

Svei mér þá er bara að andast úr leti þessa dagana rétt nenni að mæta í vinnuna og punktur semsagt hér hafa ekki verið skúruð gólf eða nokkuð annað í 4 heila daga sit bara í ruslinu og fjasa yfir umgengnini á heimilinu semsagt ekki skemtileg þoli ekki þegar þessi letiköst hellast yfir mig.

Jæja ekki meira röfl ætla að smella einum dvd í tækið og halda áfram að vera löt Whistling


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband