Sippandi önd.

Ég var með syni mínum í morgun að horfa á barnaefni svosem ekkert nýtt en yfirleitt er ég nú ekki að fylgjast neitt sérstaklega með sjónvarpinu er bara svona að dorma í sófanum á meðan hann horfir svo í morgun þá brá ég út af vananum og fylgdist með hrikalega hefur barnaefni breyst .
Teiknimyndir sem eru með íslensku tali en svona enskar slettur með ok svo náttla teiknimyndir sem eru með blóðdrifnu ofbeldi sem er bara rugl að bjóða uppá en svo kemur mynd sem ég svona festist við það sem vakti athygli mína var að þegar ég leit á skjáinn þá sá ég kind að hjóla með hund í körfu framan á hjólinu og á eftir kom önd valhoppandi með sippuband einhvernvegin fannst mér á þessum tímapunkti þetta svo fyndið að ég veltist um að hlátriLoL .sonur minn horfði á mömmu sína eins og hún væri klikkuð .

annars allt fínt hér nema að mín flaug á hausin í gærhveldi með þvííkum gauragang að heimilis fólkið kom úr öllum áttum hélt að það hefði orðið stórslys og ekki munaði nú miklu er bara haltrandi hér um.
skil ekki hvað þetta er með mig ég er alger flækjufótur dettandi út um allt held að þetta geti varla verið eðlilegt.Tounge


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Sittu bara kyrr í sófanum kona, þá detturðu ekki. Já ég brosti þegar þú lýstir teiknimyndinni þannig að ég hefði örugglega hlegið með þér að þessu.

Ragnheiður , 29.3.2008 kl. 15:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband