Átak eða.....

Jamm ég játa ,ég var í saumaklúbb og það bókstaflega flæða kræsingar út um eyrun á mér þannig að átakið verður tvöfalt á morgun ekki einu sinni hollustu fæði bara no food at all bara ýminduð steik með loft sósu fyrir mig takk.Sick

annars er heilsufarið svipað sonurinn reyndar að hressast en magapestasjúklingurinn náði sér í streptakokka líka og eiginmaðurinn kom úr vinnuferð að norðan með norðlenskt kvef (betra að hafa þetta fjölbreitt) úff úff vona bara að þessum flensum fari að linna .

Ekki það að maður eigi svo sem að vara að kvarta flensur eru þó einkvað sem lagast, allavega hjá sæmilega hraustu fólki, þetta er bara kjörið tækifæri til að kvarta yfir einhverju Blush


AAAARRRRGGGG

Þetta er nú ekki í lagi þessar helv.. pestar hér á bæ herja streptakokkar á á sonin, magapest á eina af dætrunum ,og sjálf er ég í barkabólgu og hósta eins og gamall traktor sem er verið að setja í gang eftir 5 ára hlé sef ekki fyrir þessum fjanda ,er alveg tilbúin að grípa lungun þegar þau spítast  uppí í einhverri hviðuni
þetta er satt er farinn að halda að það hafi verið ákveðið á aðalfundi sýkla og veirufélagsis að leggja mig í einelti i vetur ,(orðin pínu paranojuð)

nei svona í alvöru tala þá er þessi vetur búin að vera alveg ferlega leiðinlegur pestalega séð ggrr.


jahér

Það er nú varla hægt annað en að líta upp til hans.
mbl.is Stærsti maður heims fær bíl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erfit að kaupa skó

Já ég fór í bæinn í dag að leita mér að skóm svo sem ekkert frásögufærandi 2 vinkonur mína með mér  ég var búin að fara í hverja einustu búð í smáralind fann ekki neitt nema svona já kannski þessa eða þessir eru nú sætir en samt einhverneigin ekki að virka svo var bara ein skóbúð eftir til að fara í og þar fann ég skóna þeyr alveg örguðu á mig um leið og ég labbaði inn í bozanova ekkert smá flottir hefði betur byrjað þar jæja allavega keypti ég þá svo þegar ég var búin að því þá fór ég að spá í  hm hm skórnir sem ég skoðaði í gs skó voru nú svolítið flottir svo típísk ég erfitt að ákveða þannig að ég verð bara að kaupa bæði pörin jæja en við vorum svo himinlifandi að vera búnar að finna skóna að við settumst á næsta kaffihús og fengum okkur rauðvínsglas í þeirri von að engin sem þekkir okkur komi og sjái okkur sötra rauðvínum miðjan dag Tounge

Sippandi önd.

Ég var með syni mínum í morgun að horfa á barnaefni svosem ekkert nýtt en yfirleitt er ég nú ekki að fylgjast neitt sérstaklega með sjónvarpinu er bara svona að dorma í sófanum á meðan hann horfir svo í morgun þá brá ég út af vananum og fylgdist með hrikalega hefur barnaefni breyst .
Teiknimyndir sem eru með íslensku tali en svona enskar slettur með ok svo náttla teiknimyndir sem eru með blóðdrifnu ofbeldi sem er bara rugl að bjóða uppá en svo kemur mynd sem ég svona festist við það sem vakti athygli mína var að þegar ég leit á skjáinn þá sá ég kind að hjóla með hund í körfu framan á hjólinu og á eftir kom önd valhoppandi með sippuband einhvernvegin fannst mér á þessum tímapunkti þetta svo fyndið að ég veltist um að hlátriLoL .sonur minn horfði á mömmu sína eins og hún væri klikkuð .

annars allt fínt hér nema að mín flaug á hausin í gærhveldi með þvííkum gauragang að heimilis fólkið kom úr öllum áttum hélt að það hefði orðið stórslys og ekki munaði nú miklu er bara haltrandi hér um.
skil ekki hvað þetta er með mig ég er alger flækjufótur dettandi út um allt held að þetta geti varla verið eðlilegt.Tounge


verðum við þá öll

Eins og fólkið í auglýsingunum fá mjólkursamsölunni tannlaus og handleggsbrotin og segjum svo bara öll í kór ÉG VEIT ÞAÐ EKKI ÉG DREKK EKKI MJÓLK.Klikkun mjólkurlíter í 100 krShocking
mbl.is Mjólkurlítrinn í 100 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

kann ekki

Nú fáið þið að vita hvað ég er tæknilega fötluð ég kann bara alls ekki neitt þegar kemur að tæknilegu hliðunum ég ætlaði að fara að setja inn myndir af mínum dásamlegu börnum fór í stjórnborð og fann myndapláss fullt af því reyndar en get ekki sett inn myndirnar  ooooooooohhhh .

Nú eru páskarnir búnir og þá vil ég fá vor (var ég búin að taka framm að ég er óþolinmóð með afbrigðum)en þegar ég lít út um gluggann sé eg ennþá hvítt mig sem langar í grænt jæja ég vil trúa því að vorið fari að bresta á jeijj.

Tekið með trompi

Jæja elskurnar þá er mín opinberlega byrjuð í átaki bara hollt fæði og fór meira að segja út að hlaupa í dag og komst að því mér til mikilla furðu (eða þannig)að ég er bara í LÉLEGU FORMI vægast sagt hljóp í ca 30 mín með labb pásum og kom heim fjólublá í framan og blés eins og físibelgur svo á ég vinkonu sem er í GÓÐU FORMI í meira lagi hún er svoddan pollianna þessi elska styður við bakið á vinkonu sinni alveg gallhörð með frasana sína á reiðum höndum hér koma nokkrir: brenna til að granna , borða hollt og vera stollt hehe hún er svo mikið krútt þessi elska en ég er svona að verða eðlileg á litin first núna og farinn að anda eðlilega þetta kemur allt.


smá frávik

Já þessir páskar eru búnir að vera bara dásamlegir  með smá frávikum þar sem plönum mínum var breytt. já ég var búin að ákveða að vera á náttfötunum alla páskana nema þegar væru matarboð eða ég færi í slík . en þar sem maðurinn minn er ofvirkur í orðsins fyllstu merkingu (ef hann væri barn í dag væri hann pottó á ritalini)hann vildi skreppa í bíltúr á selfoss og grindavík það voru reyndar mjög skemmtilegar heimsóknir en truflaði náttfatapartíið mitt.

svo var það á páskadagsmorgun sem örverpið á heimilinu var náttla að gæða sér á páskaeggi og mamman auðvitað að reyna að sofa út þá varð hann þyrstur á öllu súkkulaði átinu svo ég sagði ææ þú ert svo duglegur farðu bara framm og fáðu þér brazza já hann ætlaði aldeilis að sína mömmu lötu að hann gæti sko bjargað sér og kom að vörmu spori inn í herb með stæðasta glasið sem til er á heimilinu og sagði sigri hrósandi mamma sjáðu ég gat náð sjálfur í brazza og í þeim töluðu orðum missti hann fullt glas af ísköldum appelsínu brazza beint ofan á höfuðið á mér jæja ég allvega vaknaði það væri synd að segja annað.


kallin minn er búin að vera að djóka með að hann þurfa að nota skójárn til að ná mér úr sófanum þessa páskana er það ekki bara allt í lagi ,það getur stundum tekiðá fyrir svona værukæra manneskju að vera gift svona hrikalega ofvirkum mann en ´´eg elska hann still.

Notalegt

mmmmm hvað þetta eru notalegir dagar bara að slappa af njóta þess að vera með fjölskildu og vinum gæti þetta verið einhvað betraHeart

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband